Breytingar
Kominn á nýjann og mun BETRI stað - engar bilanir og rugl
http://krissi.fallegur.com
Þá er komið að sígíldu helgarbloggi.
Vikan er búin að vera áhugaverð margra hluta vegna. Skólinn er á fullu þessa dagana enda ekki nema tæpar 3 vikur í lokapróf. Erum að vinna að rannsóknarverkefni þessa dagana, þ.e. ég og Lýður. Fengum drengina sem við erum að þjálfa til að aðstoða okkur, sem var mjög áhugavert.
Ég stefni hátt eins og fólk veit. Ég hef staðið mig það vel í vetur að boltinn er hjá mér hvað lokapróf varðar. Vetrareinkun mín er einkar glæsileg og mikilvægt að klára dæmið með stæl.
4.flokkurinn er að fara spila um helgina, nánar tiltekið á sunnudag. A-liðið er að far spila á móti Gróttu og B-liðið gegn Haukum. Tveir hörkuleikir sem mikilvægt er að vinna. Bæði liðin töpuðu sínum leikjum um síðustu helgi, sem þýðir að það er ekki síður mikilvægt að vinna um helgina.
Ég geri mér grein fyrir því að síðust blogg hafa ekki verið þau skemmtilegustu sem ég hef skrifað. Ég biðst afsökunar á því, ég mun reyna bæta mig. Það er einfaldlega svo mikið að gera að maður hefur varla undan.
Engu að síður ætla ég að koma með nýjung á síðuna. Í hverri færslu mun ég koma með eina spurningu. Þetta verður ekki einhver spurning sem fólk þarf að leita svara við, heldur spurning um eitthvað ákveðið málefni sem ég vil að þið svarið með ykkar skoðun. Það gæti verið mjög áhugavert að lesa þessi svör og mun ég fjalla um þau í kjölfarið.
Spurning dagsins er: Hvar sérðu sjálfan þig eftir 5 ár?
Endilega taktu þátt svo umræðan verði skemmtilegri.
Takk í bili.
KrissiCoach
Mun í dag vinda mínu kvæði í kross og koma með svokallað punktablogg um nýliðna helgi og hvað er framundan !
Takk í bili.
KrissiCoach.
Jæja.
Þá er leikhelgin mikla afstaðin. 4.flokkurinn minn spilaði tvo leiki á sunnudaginn. A-liðið spilaði gegn Haukum og B-liðið gegn ÍR. Við unnum báða þessa leiki og ætla ég að koma með smá leikgreiningu um þá báða.
Eins og áður sagði spilaði A-liðið mitt gegn A-liði Hauka. Mikil eftirvænting var búinn að vera eftir þessum leik enda sá fyrsti á Íslandsmótinu hjá okkur. Höfðum undirbúið okkur vel, farið yfir sóknar- og varnartaktík í vikunni fyrir leikinn. Við lögðum upp með að spila framliggjandi 5+1 vörn og leyfa bakvörðum okkar að sækja frekar utarlega og láta svo einn leikmann spila sem i"indjána" á miðjunni. Eftir erfiða byrjun, þar sem við lentum 2-3 mörkum undir snéru drengirnir leiknum sér í hag með mikilli baráttu og karakter. Eins og ég hef áður fjallað um er karakterinn það sem öllu málu skiptir þegar komið er í leiki. Handboltaleg geta hefur auðvitað mikið að segja, en þegar öllu er á botnin hvolft, þá snýst þetta um baráttu og vilja. Það skein í gegn hjá hverjum einasta leikmanni hvað við ætluðum okkur og löggðu þeir á sig í samræmi við það. Við dómineruðum leikinn frá miðjum fyrri hálfleik og uppskárum að lokum sanngjarnan 7 marka sigur. Hef sagt það við strákana að við förum eins langt í þessu móti og þeir nenna. Við höfum í sameiningu sett okkur markmið fyrir veturinn sem mun útkasta mikilli vinnu hjá hverjum einasta manni. Við höfum nægjanlega gott lið til að fara alla leið, og um leið og strákarnir fara trúa á eigin getu þá stoppar okkur ekkert.
B-liðið spilaði gegn arfaslöku B-liði ÍR. Því miður komu mínir menn með hangandi haus til leiks og spiluðu arfaslakann leik, leik sem var spilaður af okkur i samræmi við getu andstæðinganna. Við höfðum yfirhöndina allan leikinn og unnum að lokum 3 marka sigur. Við gerðum okkur verkefnið allt of erfitt því leikurinn hefði átt að klárast snemma í fyrri hálfleik. Vonnadi að menn mæti ekki með jafn hangandi haus í næsta leik sem verður gegn Selfossi á útivelli.
Mikil tilhlökkun er fyrir komu minni til Akureyrar á fimmtudaginn. Því miður þýðir þetta að ég missi af leikjum 4.flokks um helgina, en þá spilar A-liðið við Fram á útivelli og B-liðið við Selfoss á útivelli eins og áður sagði.
Ég kem semsagt norður á fimmtudag og verð fram á sunnudag. Hlakka gríðarlega til að koma, enda hef ég ekkert farið norður eftir að ég flutti suður, sem var um miðjann ágúst. Hlakka til að hitta ömmu, Helga bróðir og fjölskyldu hans, Geira og Stebo og alla hina vitleysinganna. Því miður verða mamma og pabbi og Rósa systir og fjölskylda hennar ekki í bænum en ég mun þó hitta þau fljótlega.
Sjáumst um helgina.![]()
Takk í bili.
KrissiCoach
Færslan skiptist í slæmar fréttir og góðar fréttir.
Slæmu fréttirnar eru þessar:
Það er ekki hægt annað en lýsa yfir vonbrigðum. Það kom í ljós í gær að HSÍ er búið að fresta leikjum 3.flokks fyrir norðan um næstu helgi sem þýðir að ég er ekki að koma með FH-ingana norður. Ég er gríðarlega vonsvikinn með þetta enda var ég farinn að hlakka all-hressilega til og byrjaður að undirbúa mig andlega fyrir þetta verkefni. Held reyndar að leikmenn 3.flokks KA séu guðslifandi fegnir að ekkert verður af þessum leikjum, enda ÆTLAÐI ég mér að sækja tvö stig á gamla heimavöllinn. Það er nú einu sinni þannig að til ná fram markmiðum sínum, þá verður maður að ætla sér hlutina og sætta sig ekki við neitt annað sigur, enda snýst þetta sport um það. Hefði verið virkilega áhugavert að koma í KA-heimilið og keppa á móti KA. Hef nú þegar spilað einn leik á móti mínu gamla félagi sem endaði með tíu marka sigri, og ætlaði mér að gera það aftur. En svona er þetta, maður fær ekki allt sem maður vill. Þetta kemur sér reyndar ákaflega vel fyrir mig hvað skólann varðar, ekkert eðlilega mikið að gera þar. Lýður félagi minn sem er að vinna þessi verkefni með mér var líka mjög sáttur, enda náum við að klára flest okkar verkefni í staðin á eðlilegann hátt. Ég sá fram á lærdóm alla þessa helgi fyrir norðan, sem var ekki það sem ég ætlaði mér. Ætlaði að koma norður og slappa af, vinna þessa tvo leiki í 3.flokk og hitta vini og ættingja. Ég flutti suður 14.ágúst og hef ekki komið til Akureyrar síðan. Frekar skrítið og ég verð að viðurkenna að mig er farið að langa mjög mikið að koma "heim".
Góðu fréttirnar eru þessar :
Ég mun koma norður á afmælinu mínu, þ.e.a.s. 2-5 nóvember. Ég á afmæli 3.nóvember sem er föstudagur, en ég kem norður á fimmtudeginum 2.nóvember. Ég verð fram á sunnudag 5.nóvember og það verður virkilega gaman. Stefnan er að gera eitthvað skemmtilegt á afmælinu mínu og vonandi að hitta félaga mína fyrir norðan. Þannig að ég set þetta aftur upp í hendurnar á Stebo og Geira að skipuleggja eitthvað , enda hafa þeir nægann tíma. Nú verða menn að sýna ábyrgð í verki og stíga upp, enda ekki lítil ástæða núna !
p.s. eftir helgi mun ég koma með blogg um "að taka ábyrgð" þannig að ég bið ykkur að fylgjast vel með !
Takk í bili.
KrissiCoach
Það er alveg óhætt að segja að það nóg að gera þessa dagana. Við Lýður erum að vinna saman þrjú verkefni. Erum að gera fjölmiðlaverkefni í áfanganum "Heimur íþrótta", spurningaverkefni í "Hagnýt kennslufræði", og erum að vinna spurningalistakönnun í "Rannsóknir og vinnubrögð". Svo er líka á næstunni próf í "Líffærafræði" og æfingakennsla í verklegum handbolta. Brjálað að gera, en það er nákvæmlega það sem ég vil. Ég valdi mér að fara þessa leið, fara í háskóla og takast á við það erfiða og krefjandi verkefni, nú er að standa sig og skora hátt. Enda hefur þetta gengið mjög vel það sem af er. Hef verið að fá fínar einkunnir, þannig að ég get bara verið sáttur. Það er orðið daglegt brauð að vera upp í háskóla til 23:00 - 02:00 á nóttunni. Þetta er samt hrikalega gaman, algjör forréttindi að fá að stunda nám við eitthvað sem maður hefur áhuga á. Ég held að það þurfi ekki að efast um þann áhuga sem ég hef á íþróttum.
Um aðra helgi, eða öllu heldur fimmtudaginn 26.október þá komum við Eyrún norður og verðum fram á sunnudag. Ég er bæði að koma norður til að hitta vini og fjölskyldu, og svo að spila með 3.flokk FH á móti KA og Þór. Það verður mjög áhugavert. Vonandi að fólk sjái sér fært að mæta, verða hörkuleikir.
Eins gott að menn verði búnir að plana móttöku handa kallinum. Treysti því og trúi að Geir Sigurðsson og Stefán Árnason verði klárir með eitthvað plan á fimmtudagskvöldið eftir kvöldmat. Það er einfaldlega krafa að þeir tali sig saman og verði með eitthvað skemmtilegt planað. ![]()
Takk í bili.
KrissiCoach
Þá er þessi helgi brátt að enda. Það var enginn skóli á föstudaginn og kom það sér ákaflega vel. Akademían fór á föstudaginn í sína fyrstu "vísindaferð". Fórum í KB-banka í Keflavík. Þar var okkur boðið uppá Subway og "mjólk" að drekka með. Þegar henni var lokið var haldið til Sóleyjar (á Breiðafirði - BamBam) í partý og rúta kom svo og sótti okkur þangað og keyrði okkur á Októberfest hjá Háskóla Íslands. Það var mjög gaman, verst bara hvað það mættu fáir, ekki nema 3000 manns. Á hverju ári er sett upp risastórt tjald á lóð háskólans og þangað safnast liðið saman. Við fórum svo snemma heim enda lærdómur daginn eftir, svona eins og aðra daga.
Þetta var svona blogg um daginn og veginn, enda margir beðið um það. Ég er á leiðinni upp á Ásvelli að horfa á Haukar-Akureyri, vonandi að norðanmenn taki þetta og vinni litla liðið í Hafnafirði !
Hér ætla ég að skrifa um hrós og gildi þess. Árni Stefánsson kom með þá ósk eftir síðustu færslu og þegar maður eins og hann kemur með ósk, þá gerir maður allt í sínu valdi til að uppfylla hana.
Hrós er gríðarlega mikilvægur þáttur í venjulegum samskiptum við fólk. Allt sem við gerum, daglegt líf, skóli, vinna, íþróttir eða hvað sem er, þá á maður aldrei að spara hrósið. Ég sem handboltaþjálfari legg gríðarlega mikið upp úr jákvæðum anda, jákvæðu andrúmslofti og jákvæðu viðmóti leikmanna til mín. En hver er rót allra þessara þátta? Að mínu mati, þá skapar maður jákvætt andrúmsloft í hóp með nokkrum þáttum og er hrós einn sá stærsti. Ef maður sér framför, ef leikmaður mætir vel á æfingar, leggur sig fram, gefur af sér jákvætt viðmót, er almennt jákvæður í garð hópsins, þá á maður að hrósa viðkomandi. En svo kemur á móti vandamál sem allir verða að passa sig á. Ef maður hrósar of mikið, notar hrósið sem leið úr vandamálum þá hætta menn að taka mark á því. Það getur verið í formi farsa, sem er ekki jákvætt. Ef maður sýnir hrós við allt gott sem kemur fram, missa menn trúverðuleika þess. En hrós getur komið fram á svo margann hátt. Ég segi, "notaðu hrós sem eflingu á sjálfstrausti ef viðkomandi einstaklingur hefur áunnið sér ástæðu til að vera hrósað". Þetta hljómar flókið, en þið skiljið þetta ef þið lesið setninguna nokkrum sinnum.
Þegar ég var sjálfur að stunda íþróttir, þá þótti mér ekkert jafn þægilegt og að fá hrós frá þjálfaranum. Það hrós kom yfirleitt fram í tengslum við góða æfingasókn, framlegð á æfingum og jákvætt viðhorf. En hann hrósaði mér ekki ef oft, sem þýddi að það var jafn sætt í hvert skipti. Mín skoðun er sú að við eigum ekki að spara hrósið ef það á við. Hrósaðu þeim sem á það skilið, því maður fær svo mikla virðingu frá viðkomandi í staðinn.
Takk í bili.
KrissiCoach